Kynningarfundur á Landsmóti 50+

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Kynningarfundur á keppnisgreinum á landmótinu verður í íþróttahúsinu í Borgarnesi fimmtudaginn 22. maí kl 19:30.

 

Sigurður Guðmundsson frá UMFÍ mætir á fundinn til að kynna mótið.

Sérstök kynning verður á ringó að kynningu lokinni. Ringo svipar mjög til blaks. Sömu reglur eru í ringo og blaki nema hringir eru notaðir í stað bolta. Þetta er íþrótt sem allir geta tekið þátt í ungir sem eldri. Leikurinn er spilaður á venjulegum blakvelli og er mjög skemmtilegur.

Á heimasíðu UMFÍ www.umfi.is er hægt að sjá keppnisgreinar á Landsmóti UMFÍ 50+ á Húsavík.

Deildu þessari frétt