Úthlutun starfsstyrkja frá Borgarbyggð

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Opið er fyrir umsóknir í starfsstyrk Borgarbyggðar. Skila þarf inn starfsstyrk til UMSB fyrir lok apríl.

Um starfsstyrki geta sótt félög og deildir þeirra sem sinna íþrótta-eða félagsstarfi innan UMSB eða hafa með höndum aðra sambærilega starfsemi. Megináherslan er á að styrkja starf með börnum og unglingum yngri en 16 ára og að starfsemin sé á forsendum uppeldislegra gilda og forvarna í víðum skilningi.

 

Umsókn skal fylgja:

a) samþykktir reikningar umsækjanda fyrir síðastliðið ár þar sem fram kemur skipting tekna og gjalda iðkenda yngri og eldri en 16 ára, þ.á.m. heildarlaunagreiðslur til þjálfara í barna og unglingastarfi.

b) yfirrlit yfir fjölda virkra iðkenda og aldursskiptingu þeirra. Virkur iðkandi er sá sem stundar félagsstarf hjá viðkomandi félagi og hefur greitt æfinga- eða þátttökugjald.

c) yfirlit yfir fjöldra skipulagðra æfinga og lengd þeirra

d) yfirlit yfir menntun og reynslu leiðbeinenda, ásamt markmiðum með starfi þeirra

e) fjárhagsáætlun fyrir líðandi ár

f) áætlanir um umfang starfsins og helstu verkefni

http://umsb.is/skrar/file/samstarfssamningar-umsb-og-borgarbyggdar/vidaukiastarfsstyrkirloka.pdf

Deildu þessari frétt