Sumarstörf hjá Borgarbyggð
Borgarbyggð auglýsir laus til umsóknar eftirfarandi sumarstörf árið 2018
Flokkstjórar Vinnuskólans
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með hópum í almennum garðyrkjustörfum, gróðursetningu og hirðingu á opnum svæðum
- Leiðbeina unglingum í leik og starfi
Vinnuskólinn verður með starfsstöðvar á fjórum stöðum í sveitarfélaginu:
- Á Hvanneyri
- Á Bifröst
- Í Reykholti
- Í Borgarnesi
Leiðbeinendur Sumarfjörs
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og undirbúningur í samráði við tómstundafulltrúa og aðra starfsmenn
- Leiðbeina börnum í leik
Sumarfjörið verður með starfsstöðvar á tveimur stöðum í sveitarfélaginu:
- Á Hvanneyri
- Í Borgarnesi
Umsækjendur um störf flokkstjóra og leiðbeinenda þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Hafa náð 20 ára aldri
- Áhugi á að vinna með unglingum og börnum
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Færni í mannlegum samskiptum
- Reynsla sem nýtist í starfi er kostur
Ráðningartímabilið er frá 1. júní -22.ágúst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kjalar og launanefndar sveitafélaga. Starfshlutfall er 100%. Umsókn með helstu upplýsingum um umsækjanda, menntun og fyrri störf ásamt ósk um starf og starfsstöð berist með tölvupósti á Sigríði Dóru Sigurgeirsdóttir tómstundafulltrúa á siggadora@umsb.is sem veitir nánari upplýsingar um störfin.
Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2018.
Deildu þessari frétt