Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið daga 23. – 25. júní í Stykkishólmi

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og kynningu á ýmis konar hreyfingu. Mótið hefur farið fram árlega síðan 2011. Mótið er öllum opið sem verða 50 ára á árinu og eldri. Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum. Þátttökugjald er aðeins 5.500kr.

Mótið verður haldið í Stykkishólmi dagana 23. – 25. júní 2023 í samstarfi við Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu og Sveitarfélagið Stykkishólm.

Opnað var fyrir skráningu 1. júní og er skráningarfrestur til 19. júní.

Nánari upplýsingar og hlekk á skráninguna má finna hér: Landsmót 50+ | Landssamband ungmennafélaga (umfi.is)

Deildu þessari frétt