COVID-19 og framhaldið

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Kæru foreldrar og iðkendur. Í ljósi aðstæðna þá er ljóst að æfingar eftir helgi munu taka breytingum.Endilega fylgist með hér á síðunni því upplýsingar munu koma hér inn jafnóðum. Bendið því foreldum á þessa síðu sem ekki vita af henni.

Við biðjum foreldra/forráðamenn að sýna þessu skilning á meðan farið er yfir stöðuna. Öll félög og deildir innan UMSB eru í góðu samntali varðandi stöðuna.

Allar æfingar halda sér fram að samkomubanninu sem tekur gildi aðfaranótt mánudagsins en það er undir hverjum og einum foreldri/forráðamanni komið að senda sín börn til æfingar.

Stjórnvöld hafa virkjað heimildir sóttvarnarlaga til að takmarka samkomur á Íslandi. Í þeim felst sú fordæmalausa aðgerð að takmarkanir eru settar á allar skipulagðar samkomur vegna farsóttar, þ.e. samkomubann sem tekur gildi á miðnætti á sunnudagskvöld til næstu fjögurra vikna.

Um tvenns konar bann er að ræða. Annars vegar samkomubann sem gildir frá 16. mars til 13. apríl. Þetta bann hefur víðtæk áhrif á íþróttahreyfinguna því í takmörkuninni felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma bannsins. Með fjöldasamkomum er átt við þegar 100 einstaklingar eða fleiri koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Íþróttaviðburðir falla þarna undir. Í takmörkuninni felst einnig að á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi skuli eftir því sem unnt er, rými skipulögð með þeim hætti að hægt sé að hafa a.m.k. tvo metra á milli einstaklinga.

 

Hins vegar er um að ræða takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar. Það tekur gildi 16. mars og gildir til 12. apríl. Heimilt er að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum að þeim skilyrðum uppfylltum að ekki séu fleiri en 20 nemendur í kennslu í sömu stofu og að nemendur blandist ekki á milli hópa. Íþróttastarf þeirra aldurshópa sem stunda grunnskólanám fellur undir þessar takmarkanir. Það þýðir að enn sem komið er, er heimilt að halda úti æfingum fyrir þessa aldurshópa ef viðkomandi íþróttafélag tryggir að ekki séu fleiri iðkendur en 20 á æfingu í sama rými og að tryggt sé að engin blöndun iðkendahópa eigi sér stað við komu og brottför.

Fundað með stjórnvöldum

Framkvæmdastjórar ÍSÍ og UMFÍ funduðu ítrekað um málið í dag. Fyrst með með ÍSÍ og sambandsaðilum og aftur síðdegis með þeim Páli Magnússyni, ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti, og Óskari Þór Ármannssyni, sérfræðingi í ráðuneytinu. Á þeim fundum var leitað skýrra svara við fjölmörgum spurningum sem brenna á íþróttahreyfingunni. Því starfi verður haldið áfram um helgina. Svörin verða birt um leið og þau berast.

ÍSÍ og UMFÍ benda íþrótta- og ungmennafélögum á að hafa samráð við viðkomandi sveitarfélag varðandi fyrirkomulag æfinga í íþróttamannvirkjum, ef ákvörðun er tekin um áframhaldandi íþróttaæfingar. Lögð er áhersla á þrif og sótthreinsun mannvirkja eftir hvern dag. Í frétt á mbl.is kemur fram að verið er að vinna sameiginlegar leiðbein­ing­ar sveit­ar­fé­laga á höfuðborg­ar­svæðinu um frí­stunda­heim­ili, íþrótt­astarf, íþrótta­mann­virki, skóla­hljóm­sveit­ir og aðrar tóm­stund­ir barna.

ÍSÍ og UMFÍ hvetja sambandsaðila sína, eftir sem áður, að fylgjast vel með þróun mála á upplýsingasíðum yfirvalda. Atburðarrás er hröð þessa dagana og gefa verður svigrúm til að láta reyna á útfærslur og túlkun nýrra reglna. ÍSÍ og UMFÍ munu gera sitt besta til að miðla upplýsingum til íþróttahreyfingarinnar þegar nýjar upplýsingar koma fram.

Svör við nokkrum af helstu spurningunum um íþróttastarfi liggja þegar fyrir. Þau eru birt á vefsíðu UMFÍ (http://www.umfi.is). Þar má jafnframt lesa sér til um COVID-19 veiruna, einkenni og aðgerðir til að draga úr mögulegri útbreiðslu hennar. Þar munu bætast við fleiri svör þegar þau liggja fyrir.

Deildu þessari frétt