Íþróttaæfingar UMFR haustið 2026

Ungmennasamband BorgarfjarðarReykdælir

Meðfylgjandi er æfingatafla haustið 2026 hjá Ungmennafélagi Reykdæla.
Frítt er fyrstu tvær vikurnar og því hvetjum við alla til að koma og prófa.
Þjálfarar
Guðjón Guðmundsson: Sund & Körfubolti 3-5 bekkur.
Ólöf Sesselja Kristófersdóttir: Körfubolti 1-2 bekkur & 6-7 bekkur.
Unnur Jónsdóttir: Frjálsar íþróttir.

Fimleikar og Badminton
Við getum því miður ekki boðið uppá badminton núna en vonumst til að það verði hægt eftir áramót.
Skortur er á þjálfurum hjá fimleikadeild ÍA og enn hefur ekki fundist lausn fyrir okkur, því miður. Leit að þjálfara stendur yfir, en ef það gengur upp munu fimleikaæfingar verða um helgar. Við auglýsum það síðar ef af verður.

Deildu þessari frétt