Virkniþing Borgarbyggðar 2026

Ungmennasamband BorgarfjarðarUMSB

VIRKNIÞING BORGARBYGGÐAR 2026

Sunnudaginn 27. september
Kl. 14:00–16:00

Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu (BeActive) boða Borgarbyggð, Ungmennasamband Borgarfjarðar og svæðisfulltrúar íþróttahreyfingarinnar á Vesturlandi til Virkniþings 2026 í Hjálmakletti þar sem íbúum gefst tækifæri til að kynna sér það fjölbreytta íþrótta-, tómstunda- og virknistarf sem í boði er í Borgarbyggð fyrir börn, ungmenni og fólk á öllum aldri.

Öllum þeim sem standa að íþrótta-, tómstunda- eða annars konar virknistarfi í Borgarbyggð er boðið að taka þátt og kynna starfsemi sína sér að kostnaðarlausu.

Á þinginu verða einnig:

  • Léttar veitingar
  • Skemmtilegir leikir og afþreying fyrir alla fjölskylduna
  • Tækifæri til að hitta fólk og kynna sér fjölbreytt starf í samfélaginu

Langar þig að taka þátt og kynna þína starfsemi?

Endilega hafðu samband til að sækja um pláss:
sonjalind@borgarbyggd.is eða bjarney@umsb.is

Umsóknir þurfa að berast fyrir 21. september.

Við hvetjum öll félög, hópa, samtök og aðra sem standa fyrir virknistarfi í Borgarbyggð til að taka þátt!

Kíktu í Hjálmaklett og finndu eitthvað við þitt hæfi!

#BEACTIVE

Deildu þessari frétt