Því miður var önnur landsliðsviðurkenning sem láðist að veita á kjöri íþróttamanneskju Borgarfjarðar þann 25. janúar sl. en það þá viðurkenningu átti Sigursteinn Ásgeirsson frá Þorgautsstöðum sem náði frábærum árangri í kúluvarpi og var valinn í A-landslið í frjálsum árið 2025.
Sigursteinn stundar nám við University of Mount Olive í Bandaríkjunum, NCAA Division II skóla með sterka frjálsíþróttadeild, þar sem hann leggur stund á nám í Exercise Science.
Á innanhústímabilinu 2025 kastaði Sigursteinn lengst 16,57 metra og var jafnan í efstu sætum á mótum tímabilsins. Hann varð meistari í Carolina Conference í kúluvarpi og tryggði skóla sínum, University of Mount Olive, fullt hús stiga.
Utanhúss árið 2025 bætti Sigursteinn enn við sig og kastaði lengst 17,35 metra. Kastið var bæði skólamet og met í Carolina Conference og skilaði honum 26. sæti á landsvísu í Bandaríkjunum, aðeins 15 sentímetrum frá sæti á bandaríska háskólameistaramótinu. Hann varð einnig meistari í Carolina Conference utanhúss og var ofarlega á flestum mótum tímabilsins.
Sumarið 2025 var Sigursteinn valinn í A-landslið Íslands og keppti á Evrópubikarmótinu í 3. deild í Slóveníu, þar sem íslenska liðið tryggði sér sæti upp um deild. Hann varð jafnframt Bikarmeistari FRÍ og Íslandsmeistari í kúluvarpi karla.
Innanhústímabilið 2026 hefur hafist með miklum krafti. Sigursteinn hefur þegar kastað 16,68 metra, sem er nýtt skóla- og deildarmet innanhúss, og er ósigraður eftir fjögur mót.
Um leið og við biðjumst innilegrar afsökunar á þessum mistökum þá óskum við Sigursteini innilega til hamingju með landsliðsvalið og hlökkum til að fylgjast með honum í framtíðinni.
Deildu þessari frétt


