Ungt fólk og lýðheilsa 2025

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa fer fram dagana 12. – 14. september 2025 að Reykjum í Hrútafirði. Umfjöllunarefni ráðstefnunnar er FÉLAGSLEGIR TÖFRAR. Töfrarnir vísa til mikilvægra en ósýnilegra gilda sem myndast í samskiptum og samveru fólks. Þeir móta hugmyndir, hegðun og sjálfsmynd fólks. Draga fólk hvert að öðru, gerir hóp að liði og samfélag að samfélagi.

Ráðstefnan hefur það markmið að hvetja ungt fólk til þátttöku í félagsstarfi íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar á nýjan hátt, ekki aðeins með því að mæta á hefðbundar íþróttaæfingar. Þátttaka getur falið í sér að sitja í stjórn deildar eða félags, taka þátt í fjölbreyttu nefndarstarfi, aðstoða við fjáröflun, dómgæslu og/eða koma að móta- og viðburðahaldi. Með öðrum orðum er markmið viðburðarins að efla og viðhalda félagslegum töfrum ungs fólks – efla og styrkja félagslega heilsu þess. Að auki felur viðburðurinn í sér hellings hópefli, líkamlega hreyfingu og afþreyingu. Viðburðurinn tekur því á öllum hliðum lýðheilsu, þ.e. líkamlegri-, andlegri- og félagslegri heilsu.

Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði. Hellings hópefli og samvera. Kynningar með mögnuðum fróðleik. Uppörvandi og hvetjandi vinnustofur, samtal við ráðamenn, kvöldvökur og önnur skemmtilegheit.

Takmarkaður fjöldi

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því borgar sig ekki að bíða of lengi með skráningu. Æskilegt er að fullorðinn einstaklingur og/eða starfsmaður ungmennaráðs/félagasamtaka fylgi þátttakendum yngri en 18 ára. Viðburðurinn gefur starfsfólki ekki síður tækifæri en þátttakendum til þess að kynnast, bera saman starf og verkefni eftir landssvæðum og félagasamtökum.

Athygli er vakin á því að viðburðurinn er með öllu vímuefnalaus, á það einnig við um rafsígarettur og nikótínpúða.

Skráning

Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið er gisting í tvær nætur, 2x kvöldmatur, 2x morgunmatur, 2x hádegismatur og 2x hressing. Ráðstefnugögn og ferðakostnaður að mestu og/eða öllu leiti. Rúta fer frá þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík á föstudeginum og til baka á sunnudeginum sem þátttakendur eru hvattir til þess að nýta sér. Ferðatilhögun frá Akureyri og Egilsstöðum fer eftir fjölda skráninga og er því í vinnslu. Við hvetjum því þátttakendur að bíða ekki of lengi með að skrá sig svo hægt sé að staðfesta og ganga frá öllum ferðatilhögunum í tíma.

Skráning er í fullum gangi og stendur til í síðasta lagi til 8. september, eða þar til uppselt verður.

Hér er hlekkur á upplýsingasíðu viðburðarins: Ungt fólk og lýðheilsa 2025 – Ungmennafélag Íslands

Hér er hlekkur á skráningarsíðuna: Ungt fólk og lýðheilsa 2025

ATH. UMSB greiðir þátttökugjöld fyrir ungmenni  á sambandssvæðinu, sendið póst á umsb@umsb.is fyrir frekari upplýsingar.

Deildu þessari frétt