Íbúar peppaðir í gang á nýju ári

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Góð þátttaka var á íbúafundi UMSB og Heilsueflandi samfélags fimmtudaginn sl. í Hjálmakletti. Aldís Arna Tryggvadóttir markþjálfi fjallaði um hvernig ná má árangri í lífinu með markmiðasetningu og sjálfsrækt. Tók hún fjölmörg dæmi sem geta hjálpað fólki að láta drauma sína rætast og geta nýst fólki í sínu lífi. Gauti Grétarsson einn reyndasti sjúkraþjálfari landsins fjallaði um mikilvægi hreyfingar og hversu mikilvægt væri að þjálfa rassvöðva. Fór hann yfir æfingar sem hægt væri að gera til að finna og virkja þennan mikilvæga vöðva. Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri UMSB kynnti stuttlega Landmót UMFÍ 50+ sem haldið verður í Borgarnesi 19.– 21. júní 2020. Samningur milli Borgarbyggðar og UMFÍ verður undirritaður bráðlega og hefur stýrihópur um verkefnið hafið störf.

Ljóst er að íbúar verða vel peppaðir á nýju ári eftir að hafa hlustað á þessi erindi.

Deildu þessari frétt