Opið er fyrir umsóknir í afreksmannasjóð UMSB. Reglugerð um sjóðinn má sjá hér að neðan og umsóknarblað hér.
Sendið skal umsókn á umsb@umsb.is fyrir 4. mars eða koma á skrifstofu UMSB að Borgarbraut 14.
Reglugerð um afreksmannasjóð UMSB
1.grein
Sjóðurinn heitir Afreksmannasjóður UMSB, stofnaður á 86. Sambandsþingi UMSB 13. mars 2008
2.grein
Tilgangur sjóðsins er að styrkja afreksfólk, einstaklinga eða hópa innan UMSB sem náð hafa framúrskarandi árangri í íþrótt sinni.
3.grein
Eingöngu félagar innan aðildarfélaga UMSB sem hafa jafnframt keppt fyrir sitt aðildarfélag á árinu, eða íbúar með lögheimili í sveitafélaginu á sambandssvæði UMSB geta hlotið styrk úr sjóðunum.
4.grein
Stjórn sjóðsins annast úthlutun úr sjóðnum. Stjórnin er skipuð þremur einstaklingum með þekkingu á íþróttum. Stjórnin skal kosin á sambandsþingi UMSB til tveggja ára. Einnig skal kjósa einn varamann til tveggja ára. Stjórn er heimilt að kalla til varamann ef stjórnarmaður verður vanhæfur vegna persónulegra tengsla við mál. Skal þá viðkomandi stjórnarmaður víkja sæti og varamaður taka sæti í hans stað.
5.grein
Vörslu sjóðsins og reikningshald annast gjaldkeri UMSB. Skoðunarmenn UMSB eru jafnframt skoðunarmenn reikninga sjóðsins.
6.grein
Tekjur sjóðsins eru:
Ákveðið hlutfall af óskiptum lottótekjum UMSB, samkvæmt reglugerð þar um.
Frjáls framlög og söfnunarfé.
Framlög sveitarfélaga á starfssvæði UMSB
Framlag UMSB
Tekjur af ávöxtun sjóðsins.
7.grein
Styrkveitingar:
a.Veita má styrk úr sjóðnum vegna þátttöku á eftirtöldum alþjóðamótum:
Ólympíuleikum
Heimsmeistaramótum
Evrópumeistaramótum
Norðurlandameistaramótum
Smáþjóðaleikum
Öðrum mótum sem sérsambönd viðurkenna sem alþjóðleg mót
b.Heimilt er að veita styrk úr sjóðnum ef viðkomandi hefur verið valinn í landslið.
c.Heimilt er að veita styrk til einstaklinga sem standa framarlega í sinni íþróttagrein samkvæmt styrkleikaflokkun sérsambanda.
8.grein
Styrkupphæðir taka mið af fjármagnsgetu sjóðsins hverju sinni. Úthlutanir skulu þó ekki fara yfir 75% af tekjum hvers árs.
9.grein
Úthlutun úr sjóðnum fer fram í mars ár hvert. Umsóknir þurfa að berast fyrir 1 mars. undirritaðar af formanni viðkomandi aðildarfélags. Með umsókn skal fylgja greinargerð frá keppanda um helstu afrek og hvernig fyrirhugað er að nýta styrkinn. Heimilt er að úthluta úr sjóðnum á öðrum tíma en að framan greinir ef sérstaklega stendur á.
10.grein
Reglugerð þessi er samþykkt á sambandsþingi UMSB í félagsheimilinu Fannahlíð 12. mars 2016 og öðlast þegar gildi. Með samþykkt þessari fellur úr gildi eldri reglugerð um afreksmannasjóð UMSB frá 2008.
Greinargerð með reglugerð.
Haustið 2015 var skipaður þriggja manna vinnuhópur til að endurskoða reglugerð um afreksmannasjóð UMSB. Hópurinn tók til starfa í nóvember 2015 og starfaði fram í febrúar 2016. Á þessum tíma hélt hópurinn alls fjóra fundi. Tillaga að nýrri reglugerð byggir að stórum hluta á eldri reglurgerð, en á henni hafa verið gerðar orðalagsbreytingar auk þess sem hún hefur verið aðlöguð þeim breytingum sem orðið hafa á starfsemi UMSB.
Vinnuhópurinn beinir eftirfarandi tilmælum til stjórnar UMSB um vinnulag við umsýslu sjóðsins:
Mjög mikilvægt er að þeir sem kosnir eru í stjórn sjóðsins hafi þekkingu á íþróttum. Æskilegt er að bæði konur og karlar séu í stjórn sjóðsins.
Stjórn skal alla jafna afla sér upplýsinga hjá sérsambandi viðkomandi umsækjanda til að meta hver árangur hans er.
Ekki er nauðsynlegt að útlhluta öllum sjóðnum á hverju ári en þá er ætlast til að það sem eftir situr geti komi til úthlutunar næsta ár.
Sjóðurinn er afrekssjóður og því ekki hugsaður sem ferðasjóður þar sem UMSB úthlutar ferðastyrkjum á annan hátt.
Reglugerðin var samþykkt á 94.sambandsþingi UMSB 12.mars 2016. Endurskoðuð á formannafundi UMSB 5. október 2017.
Deildu þessari frétt