Dance Aerobics í Borgarbyggð til styrktar verkefninu ,,Sýnum karakter“ hjá UMSB

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Dance Aerobics í Borgarbyggð til styrktar verkefninu ,,Sýnum karakter“ hjá UMSB

 

UMSB hefur hafið innleiðingu á verkefninu ,,Sýnum karakter“ í samvinnu við UMFÍ. Hugmyndafræði verkefnisins byggist á því að hægt sé að þjálfa og styrkja sálræna og félagslega færni iðkenda rétt eins og líkamlega færni. Áhersluþættir verkefnisins eru: sjálfstraust, félagsfærni, leiðtogar, áhugi, einbeiting og markaðssetning. 

 

Verkefnið hefur fengið frábæran styrk frá Aldísi Örnu Tryggvadóttur sem er með kennararéttindi frá Fusion Fitness Academy í hóptímakennslu hvers konar og styrktarþjálfun. Þann 26. mars – 28. apríl heldur hún sérnámskeið í Dance Aerobics í Borgarnesi á þriðjudögum kl. 17:30 og á Hvanneyri á sunnudögum kl. 11:30. Allur ágóðinn rennur til styrktar verkefninu. Færir UMSB henni kærar þakkir fyrir að vekja verðskuldaða athygli á verkefninu og leggja því lið með fjárhagslegum stuðningi.

 

Við gefum Aldísi Örnu orðið um ástæðu þess að hún ákvað að leggja þessu verkefni lið:

 

,,Upphaflegt vinnuheiti þessarar söfnunar var ,,Dans gegn depurð“ því að kvíði og depurð eru samfélagslegar staðreyndir sem hafa hamlandi áhrif á einstaklinga, fjölskyldur þeirra og lífsgæði. Sjúkrasjóðir eru að tæmast, geðlyf seljast unnvörpum og ein helsta ástæða örorku á Íslandi eru andlegir sjúkdómar. Við getum öll hjálpast að við að breyta þessari stöðu til hins betra. Ég varð strax hugfangin af verkefninu ,,Sýnum karakter“ þar sem verkefnið snýr að miklu leyti að sjálfstyrkingu, félagsfærni og leiðtogaæfni barna og unglinga – þeim þáttum sem  taldir eru mikilvægur grunnur að því að líða vel í eigin skinni, njóta lífsins og ná árangri í lífi, leik og starfi. Okkur þarf að líða vel til að geta látið drauma okkar, langanir og þrár verða að veruleika – til að lifa til fulls. Sterkir einstaklingar sýna sjálfum sér og öðrum virðingu, eru hvetjandi, ,,stækka“ fólk og þannig njóta allir góðs af.

 

Útrásin við hreyfingu losar um gleðihormónið endorfín sem hjálpar okkur einnig að finnast allt mögulegt um leið og við minnkum líkurnar margfalt á líkamlegri og andlegri vanlíðan. Hreyfing er allra meina bót og sterk sjálfsmynd flytur fjöll – hún er eitt dýrmætasta veganesti lífs okkar.

 

Mér finnst mikilvægt að við byrjum strax að hlúa að yngri kynslóðinni, það er miklu auðveldara að byggja upp sterka einstaklinga en ,,laga“ fullorðið fólk síðar meir. Það er afar brýnt að einstaklingar læri strax að viðhalda og rækta þá sterku sjálfsmynd sem þeir fengu í vöggugjöf – sjálfum sér, samferðarmönnum sínum og samfélaginu öllu til heilla.

 

Ég er þakklát því að búa í Borgarbyggð. Hér býr heilsteypt og yndislegt fólk. Þess vegna langar mig að láta gott af mér leiða til samfélagsins. Það er brýnt að nýta hvert tækifæri til að vekja máls á mikilvægi hreyfingar og eflingar sjálfstrausts. Þetta er mitt framlag.

 

Skráning á námskeiðið er á https://www.facebook.com/groups/197438914179480/  greiðslur fara inn á reikning: 0130 – 26 – 9981 kennitala 660269 5929. Hægt er að skrá sig í staka tíma eða á heilt námskeið. UMSB skorar á fyrirtæki að bjóða starfsfólki sínu í tíma og fá um leið góða hreyfingu sem og styrkja gott málefni um leið. Styrkur sem þessi gerir UMSB kleift að bjóða t.d. upp á fræðslu um sálræna og félagslega þætti barna og unglinga. Málefnið er mikilvægt og þarft.  

 

 

Deildu þessari frétt