Borgarbyggð auglýsir til umsóknar framkvæmdastyrki. Styrkjunum er ætlað styðja við einstakar framkvæmdir hjá íþrótta- og tómstundafélögum innan Borgarbyggðar til uppbyggingar eða viðhalds á fasteignum eða athafnasvæði félagsins sem Borgarbyggð kemur ekki að rekstri að öðru leyti og er í eigu félaga eða félagasamtaka innan Borgarbyggðar.
Skilyrði fyrir styrkveitingu er að um íþrótta-, ungmenna- eða tómstundafélag innan Borgarbyggðar sé að ræða. Umsóknaraðili þarf að reka sértæka aðstöðu eða húsnæði innan sveitarfélagsins sem sveitarfélagið Borgarbyggð hvorki á eða rekur og leggur ekki til framkvæmdarfé á fjárhagsáætlun.
Umsókninni þarf að fylgja framkvæmdar- og kostnaðaráætlun. Einnig þarf að koma skýrt fram hvert er markmið framkvæmdarinnar.
Hægt er að sækja um styrki til verkefna sem eru nú þegar í gangi eða eru áformuð. Ekki er úthlutað vegna verkefna þar sem framkvæmdum er lokið.
Hámarksstyrkur er kr. 2.000.000 og getur hvert verkefni að hámarki verið stutt 3 ár í senn. Sjálboðavinna er metin að fullu sem vinna.
Styrkurinn greiðist í tvennu lagi, 50% við tilkynningu um styrkveitingu og 50% þegar lokaskýrsla hefur borist byggðarráði. Verði verkið ekki framkvæmt skal styrkurinn endurgreiðast að fullu. Vinnist verkið ekki eins og fram kom í upphaflegri styrkbeiðni verður að koma skýrt fram í lokaskýrslu hversvegna svo er ekki og rökstuðningur að fylgja.
Við úthlutun á styrk skal eftirfarandi reglum fylgt til að fá úr því skorið hvort framkvæmdin teljist styrkhæf.
- Að um sé að ræða skilgreint íþrótta og/eða tómstundafélag sem standi fyrir framkvæmdinni.
- Að félagið eigi lögheimili í Borgarbyggð og sé opið öllum.
- Að framkvæmdin bæti aðstöðu og/eða auki möguleika á að fjölga iðkendum í viðkomandi félagi.
- Að félagið hafi fjárhagslega eða félagslegan styrk til að standa að framkvæmdum og rekstri þess sem á að framkvæma enda komi það fram í áætlun sem fylgi með umsókn.
- Að starfsemin falli vel að markmiðum sveitarfélagsins um íþróttir og tómstundir sem birtast í stefnum þess. Þar má nefna bæði Íþrótta og tómstundastefnu og Heilsueflandi samfélag.
Sótt er um á íbúagátt á heimasíðu Borgarbyggðar fyrir 30. maí 2019
Nánari upplýsingar veitir Anna Magnea Hreinsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs á annamagnea@borgarbyggd.is
Reglur vegna framkvæmdastyrkja til
Íþrótta- og tómstundafélaga í Borgarbyggð
1.gr. Styrkirnir bera heitið Styrkir vegna Framkvæmda íþrótta og tómstundamála og er heimili og varnarþing þeirra í ráðhúsi Borgarbyggðar.
2.gr. Tilgangur þeirra er að styrkja við einstakar framkvæmdir hjá íþrótta- og tómstundafélögum innan Borgarbyggðar til uppbyggingar eða viðhalds á fasteignum eða athafnasvæði félagsins sem Borgarbyggð kemur ekki að rekstri að öðru leyti og er í eigu félaga eða félagasamtaka innan Borgarbyggðar.
3. gr. Framlög eru ákveðin á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins ár hvert.
4.gr Byggðaráð fer með úthlutun að fenginni umsögn fjölskyldusviðs og umhverfis- og skipulagssviðs.
5.gr Umsóknum skal skilað inn á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á íbúagátt á heimasíðu Borgarbyggðar.
Umsóknir skulu berast fyrir 15. maí ár hvert og úthlutun fara fram ekki síðar en 30. maí sama ár. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að um íþrótta-, ungmenna- eða tómstundafélag innan Borgarbyggðar sé að ræða. Umsóknaraðili þarf að reka sértæka aðstöðu eða húsnæði innan sveitarfélagsins sem sveitarfélagið Borgarbyggð hvorki á eða rekur og leggur ekki til framkvæmdarfé á fjárhagsáætlun.
Umsókninni þarf að fylgja framkvæmdar- og kostnaðaráætlun. Einnig þarf að koma skýrt fram hvert er markmið framkvæmdarinnar.
6. gr Styrkurinn skal auglýstur á heimasíðu sveitafélagsins og í að minnsta kosti einum miðli sem fer inn á öll heimili sveitarfélagsins.
7. gr Styrkurinn greiðist í tvennu lagi, 50% við tilkynningu um styrkveitingu og 50% þegar lokaskýrsla hefur borist byggðarráði. Verði verkið ekki framkvæmt skal styrkurinn endurgreiðast að fullu. Vinnist verkið ekki eins og fram kom í upphaflegri styrkbeiðni verður að koma skýrt fram í lokaskýrslu hversvegna svo er ekki og rökstuðningur að fylgja.
8. gr Hámarksstyrkur er kr. 2.000.000 og getur hvert verkefni að hámarki verið stutt 3 ár í senn. Sjálboðavinna er metin að fullu sem vinna.
9. gr Hægt er að sækja um styrki til verkefna sem eru nú þegar í gangi eða eru áformuð. Ekki er úthlutað vegna verkefna þar sem framkvæmdum er lokið.
10. gr Við úthlutun á styrk skal eftirfarandi reglum fylgt til að fá úr því skorið hvort framkvæmdin teljist styrkhæf.
Að um sé að ræða skilgreint íþrótta og/eða tómstundafélag sem standi fyrir framkvæmdinni. Að félagið eigi lögheimili í Borgarbyggð og sé opið öllum.
Að framkvæmdin bæti aðstöðu og/eða auki möguleika á að fjölga iðkendum í viðkomandi félagi.
Að félagið hafi fjárhagslega eða félagslegan styrk til að standa að framkvæmdum og rekstri þess sem á að framkvæma enda komi það fram í áætlun sem fylgi með umsókn.
Að starfsemin falli vel að markmiðum sveitarfélagsins um íþróttir og tómstundir sem birtast í stefnum þess. Þar má nefna bæði Íþrótta og tómstundastefnu og Heilsueflandi samfélag.
Samþykkt í sveitarstjórn Borgarbyggðar 11. apríl 2019
Deildu þessari frétt