Frístund í Borgarnesi óskar eftir frístundarleiðbeinanda.
Markhópur frístundar eru börn í 1.-4. bekk og er frístund starfrækt eftir hefðbundinn skóladag hjá börnunum.
Í boði er hlutastarf þar sem unnið er virka daga frá 13:15-15:30.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af vinnu með börnum æskileg
- Góð færni í mannlegum samskipum
- Sjálfstæð vinnubrögð
Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefur Sigríður Dóra Sigurgeirsdóttir í síma 869-8646.
Deildu þessari frétt