Garpasundæfingar hefjast í haust hjá sunddeild Skallagríms

Ungmennasamband Borgarfjarðar Sund, UMSB

Boðið verður upp á áframhaldandi sundæfingar fyrir fullorðna í sundlauginni í Borgarnesi og hefjast æfingar fimmtudaginn 7. september nk. 

Æfingar verða til og með 7. desember 

Nauðsynlegt er að hafa náð ágætum tökum á skriðsundi fyrir þessar æfingar og er byrjendum bent á skriðsundnámskeið sem hefjast sama dag. 

Garpaæfingar verða á fimmtudögum kl 17:00 – 18:00 með þjálfara og á þriðjudögum kl 17:00 – 18:00 án þjálfara 

Þjálfari: Arnheiður Hjörleifsdóttir 

Verð: 24.000 

Innifalið er æfingagjöld, aðgangur að sundlaug utan æfingatíma, SSÍ gjöld

Skráning í gegnum Sportabler 

Nánari upplýsingar veittar í tölvupósti: skallasund@gmail.com

https://www.sportabler.com/shop/skallagrimur/sund

Deildu þessari frétt