Íþrótta- og tómstundastyrkir vegna áhrifa COVID-19

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

Upplýsingar á island.is

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar hjá Borgarbyggð

Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Alls verður um 900 milljónum króna varið í verkefnið árin 2020 og 2021 og er það hluti af aðgerðapakka sem kynntur var í vor hjá yfirvöldum og ætlað er að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem COVID-19 faraldurinn hefur haft á afkomu efnaminni heimila í landinu.

Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020. Miðað er við að íþrótta- og tómstundaiðkunin fari fram á skólaárinu 2020- 2021.

Áður en sótt er um styrk hjá Borgarbyggð þarf að kannað hvort heimilið falli undir ofangreint tekjuviðmið.

Deildu þessari frétt