Heilbrigðisráðherra kynnti í gær breytingu á samkomubanni. Í því felst að fjöldamörk samkomubanns hækka úr 20 í 50 manns 4. maí næstkomandi
Íþróttastarf fullorðinna lýtur áfram takmörkunum. Þar á meðal mega mest sjö einstaklingar vera með þjálfara á útisvæði sem miðast við hálfan fótboltavöll en fjórir með þjálfara á innisvæði sem miðast við handboltavöll. Notkun á búningssaðstöðu innanhúss er óheimil og hvatt til að tveggja metra nándarreglan verði virt.
Fjarlægðartakmarkanir eiga ekki við börn á leik- og grunnskólaaldri og því aðeins um ungmenni á framhaldsskólaaldri og fullorðna.
Aflétting samkomubanns og minnispunktar sóttvarnalæknis í stuttu máli:
Íþrótta- og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskólastigi:
- Engar fjöldatakmarkanir verða settar á iðkendur.
- Öll íþrótta- og æskulýðsstarfsemi, inni og úti, verði leyfð.
- Skíðasvæði verði opin fyrir æfingar barna og unglinga.
- Sundlaugar, búnings- og sundaðstaða verði opin fyrir sundæfingar barna og unglinga.
- Keppni í íþróttum barna á leik- og grunnskólastigi verði heimil án áhorfenda.
- Hvatt verði til sérstaks hreinlætis og handþvottar.
Íþróttastarf fullorðinna:
- Mest verði sjö einstaklingar með þjálfara á útisvæði sem miðast við hálfan fótboltavöll.
- Mest verði fjórir einstaklingar með þjálfara á innisvæði sem miðast við handboltavöll.
- Notkun búningsaðstöðu innanhúss verði óheimil.
- Hvatt verði til að tveggjametra nándarreglan verði virt.
- Keppni í íþróttum fullorðinna verði óheimil nema ef hægt sé að uppfylla skilyrði um tveggja metra nándarreglu og að keppni sé án áhorfenda.
- Sundæfingar fyrir fullorðna verði að hámarki fyrir sjö einstaklinga. Notkun búnings- og sturtuaðstöðu verði leyfð.
- Áfram verði hvatt til sérstaks hreinlætis, handþvottar og notkunar handspritts.
- Sundlaugar verði lokaðar almenningi.
Líkamsræktarstöðvar:
- Húsnæði líkamsræktarstöðva verði lokað en starfsemi utandyra leyfð. Mest verði sjö einstaklingar í hópum utandyra. Notkun búningsaðstöðu innanhúss verði bönnuð.
Auglýsingin í heild sinni:
Fjöldamörk samkomubanns hækka úr 20 í 50 manns 4. maí næstkomandi, unnt verður að opna framhalds- og háskóla og ýmsir þjónustuveitendur geta á ný tekið á móti viðskiptavinum. Frá sama tíma falla alveg niður takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum og einnig fjöldatakmarkanir við íþróttaiðkun og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskólaaldri. Þetta er meðal þess sem leiðir af nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Rýmkun á reglum um takmarkanir á skólahaldi og samkomum er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.
Í auglýsingunni felst að reglur um fjöldatakmörk og um tveggja metra nálægðarmörk munu frá gildistöku hennar ekki eiga við um nemendur í starfsemi leik- og grunnskóla. Þannig verður því unnt að halda óskertri kennslu og vistun barna. Sama á við varðandi börnin í starfsemi dagforeldra, frístundaheimila, félagsmiðstöðva og annarri lögbundinni þjónustu á leik- og grunnskólastigi. Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar almenningi en skólasundkennsla verður heimil.
Áform stjórnvalda um tilslakanir á takmörkunum á samkomum og skólahaldi voru kynntar á fréttamannafundi forsætis- heilbrigðis- og dómsmálaráðherra 14. apríl síðastliðinn. Með auglýsingunni sem birt var í dag eru breytingarnar nákvæmlega útfærðar. Í meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis, dags. 19. apríl 2020, sem er viðbót við fyrri minnisblöð hans til heilbrigðisráðherra sem kynnt voru 14. apríl, er gott yfirlit yfir helstu breytingar sem auglýsingin hefur í för með sér varðandi skólastarf á öllum skólastigum, á íþróttastarf barna og fullorðinna o.fl.
Sóttvarnalæknir leggur til við heilbrigðisráðherra að þegar líður að lokum maí verði skoðaðir möguleikar á að aflétta enn frekar takmörkunum á samkomum. Að því gefnu að ekkert standi slíkum breytingum fyrir þrifum verði stefnt að því að færa fjöldatakmarkanir úr 50 í 100 manns, opna sundlaugar og líkamsræktarstöðvar o.fl.
Það skal ítrekað að meðfylgjandi auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tekur ekki gildi fyrr en 4. maí næstkomandi. Frá sama tíma falla úr gildi núgildandi auglýsingar um takmörkun á samkomum og um takmörkun á skólastarfi.
Auglýsinguna og minnisblöð má lesa á vef heilbrigðisráðuneytis
Deildu þessari frétt