UMSB og Borgarbyggð í samstarfi við Ferðafélag Íslands bjóða uppá göngur alla miðvikudaga í september.
Göngurnar eru í 60-90 mínútur og fyrir alla aldurshópa. Kostar ekkert að ganga með, bara mæta klædd eftir veðri.
4.september kl.18
Gengið um Skóræktina í Reykholti og um Reykholtsstað. Gangan byrjar við Höskuldsgerði í Reykholti.
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir leiðir gönguna.
11.september kl.18
Gengið upp á Hestfjall. Gengið frá Skorradalsvegi af melnum ofan við Syðstu- Fossa.
Kristján Guðmundsson leiðir gönguna.
18. september kl.18
Gengið upp með hluta Grímsár í Lundareykjardal. Lagt af stað við Oddsstaðarrétt í Lundareykjardal. Gengið verður meðfram ánni upp frá Jötnabrúarfossi.
Sigurður Hannes Sigurðsson leiðir gönguna
25. september kl.17
Gengið á Hafnarfjallið, upp að “steini”. Gengið verður í rólegheitum eftir gönguleið upp í hlíðar fjallsins. Lagt verður af stað frá “bílastæði” við hliðið á veginum rétt fyrir ofan Hótel Hafnarfjall.
Ungmenni frá Borgarbyggð leiða gönguna.
Deildu þessari frétt