Tilnefningar til íþróttamanns ársins

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Stjórn UMSB óskar eftir ábendingum frá almenningi um íþróttafólk sem þykir hafa náð góðum árangri eða skarað fram úr í sinni íþrótt á árinu 2014. Samkvæmt reglum um kjör íþróttamanns Borgarfjarðar þá er stjórn UMSB heimilt að tilnefna allt að þrjá einstaklinga eða pör að eigin frumkvæði eða eftir ábendingum frá almenningi. Ábendingarnar skulu berast á skrifstofu UMSB á Borgarbraut 61 eða í tölvupósti á netfangið umsb@umsb.is fyrir föstudaginn 2.janúar 2015. Reglur varðandi kjör íþróttamanns Borgarfjarðar má sjá hér og allar nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 869-7092.

Deildu þessari frétt