UMSB óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Við hjá UMSB óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum fyrir samstarfið á árinu sem er að líða og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Það er margt framundan á komandi ári hjá íþrótta- og ungmennahreyfingunni. Ber þar hæst kjör Íþróttamanneskju ársins sem fram fer þann 6. janúar nk. við hátíðlega athöfn í Hjálmakletti og Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer um verslunarmannahelgina 2024 í Borgarbyggð.

Vonumst við til að sjá sem flest og viljum jafnframt nota tækifærið og þakka fyrir ómetanlegt framlag sjálfboðaliða í gegnum tíðina.

Stjórn UMSB

Deildu þessari frétt