Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa fer fram dagana 18.–20. september 2026 að Reykjum í Hrútafirði.
Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Blómstrum. Styrkjumst. Tengjumst.
Hún vísar til þess hvernig við getum eflt andlega, líkamlega og félagslega heilsu okkar í heimi þar sem áreiti, hraði og skjánotkun hafa sífellt meiri áhrif á daglegt líf.
Á ráðstefnunni fá þátttakendur tækifæri til að staldra við, skoða eigin líðan og átta sig á því hvað nærir þau og hvað dregur úr orku. Í gegnum vinnustofur, samtal og samveru er unnið með sjálfsmynd, lífsstíl og tengsl – bæði í stafrænum heimi og utan hans.
Markmið ráðstefnunnar er að styrkja ungt fólk til að hafa áhrif á eigið líf og sitt nærsamfélag. Þátttakendur öðlast aukið sjálfstraust, læra að koma skoðunum sínum á framfæri og mynda tengsl sem geta haft áhrif til framtíðar.
Dagskráin verður fjölbreytt að vanda: hópefli og samvera, áhugaverðir fyrirlestrar, hvetjandi vinnustofur og samtal við ráðafólk. Einnig verður boðið upp á kvöldvökur og ýmis skemmtilegheit sem skapa sterka heildarupplifun.
Takmarkaður fjöldi
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því hvetjum við áhugasöm til að skrá sig tímanlega.
Starfsfólk ungmennaráða, félagsmiðstöðva, íþróttahéraða og íþróttafélaga er hvatt til að koma með þátttakendum yngri en 18 ára. Ráðstefnan er einnig góður vettvangur fyrir starfsfólk til að kynnast, bera saman reynslu og eiga samtal um starf með ungu fólki.
Ef ungmenni mæta á eigin vegum getur starfsfólk UMFÍ verið ábyrgðaraðili, að því gefnu að foreldrar eða forráðafólk veiti samþykki og undirriti þar til gert leyfisbréf.
Viðburðurinn er alfarið vímuefnalaus, þar á meðal hvað varðar rafsígarettur og nikótínpúða.
Skráning
Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið er gisting í tvær nætur, máltíðir yfir helgina, hressing, ráðstefnugögn og ferðir að mestu eða öllu leyti.
ATH. UMSB greiðir þátttökugjöld fyrir ungmenni á sambandssvæðinu, sendið póst á bjarney@umsb.is fyrir frekari upplýsingar.
Rútur fara frá Reykjavík og Akureyri á föstudegi og til baka á sunnudegi, sem þátttakendur eru hvattir til að nýta sér. Hægt er að sækja um styrk fyrir ferðakostnaði ef rútan nýtist ekki.
Við hvetjum áhugasöm til að skrá sig tímanlega svo hægt sé að ganga frá ferðatilhögunum í tæka tíð.
Skráning stendur til 8. september, eða þar til uppselt verður.
Hægt er að skrá sig hér
Hér er hlekkur á viðburðinn á Facebook: Ungt fólk og lýðheilsa 2026
Ráðstefnan er styrkt af Erasmus+.
Deildu þessari frétt


