Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar og Borgfirsk menningarverðlaun

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Minningarsjóður Guðmundar Böðvarssonar skálds og bónda á Kirkjubóli og Ingibjargar Sigurðardóttur konu hans veitir Ljóðaverlaun Guðmundar Böðvarssonar og Borgfirsk menningarverðlaun á samkomu í Reykholtskirkju laugardaginn 30. ágúst nk. Samkoman hefst kl. 16.00.

Þetta er í níunda sinn sem sjóðurinn veitir þessi verðlaun.

        Aðilar að sjóðnum eru Búnaðarsamband Vesturlands, Ungmennasamband Borgarfjarðar, Samband borfirskra kvenna, Rithöfundasamband Íslands og afkomendur Guðmundar og Ingibjargar.

        Auk afhendinga verðlauna er dagskrá með tónlistarflutningi og ljóðalestri. Allir eru velkomnir og alveg sérstaklega félagar í aðildarfélögum sjóðsins.

        Við vonumst til að sjá ykkur sem flest.

        F.h. minningarsjóðsins Böðvar Guðmundsson

Deildu þessari frétt