Opnað hefur verði fyrir skráningar í íþróttir fyrir vorönn 2020

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Búið er að opna fyrir skráningar í íþróttir fyrir vorönn 2020. Mjög mikilvægt er að gengið sé frá skráningum sem fyrst. Þegar gengið er frá skráningum er hægt að nýta sér frístundastyrk frá Borgarbyggð sem er 20.000 á ári. Mögulegt er að nýta hann hvenær sem er á árinu. Áður voru 10.000 á vorönn og 10.000 á haustönn.

 

Hafið eftirfarandi í huga!

  • Eingöngu er hægt að nýta frístundastyrk þegar greitt er í gegnum þjónustugátt Borgarbyggðar  eða Nóra í gegnum UMSB
  • Ganga skal frá æfingagjöldum sem allra fyrst!
  • Hafi æfingagjöld ekki verið greidd inna tveggja vikna og iðkandi verið við æfingar verður barnið stofnað inn í Nóra greiðslukerfi. Sendur verður tölvupóstur á forráðamenn og þeir hvatir til að greiða gjöldin. Ef ekki er búið að greiða innan 10 daga verður sendur greiðsluseðill á forráðamenn. Þá er ekki hægt að nýta sér frístundastyrk.
  • Greiðsla æfingagjalds er forsenda/skilyrði fyrir þátttöku á æfingum og mótum sem flokkur þess fer á. Þjálfarar skrá mætingar á hverja æfingu.
  • Kjósi iðkandi að hætta æfingum verður úrsögn að berast viðkomandi félagi.
  • Það er á ábyrgð forráðamanna að tilkynna úrsögn.

 

Reglur um frístundastyrk Borgarbyggðar

Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni

Borgarbyggð styrkir frístundaiðkun barna og ungmenna á aldrinum 6-18 ára með framlagi að upphæð kr. 20.000 á ári. Markmið framlagsins er að hvetja börn og ungmenni til að taka þátt í frístundastarfi.

Hægt er að nýta frístundastyrk í:

  • Skipulagt frístundastarf sem stundað er undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda samfellt í a.m.k. 10 vikur. Þetta á t.d. við um allt íþróttastarf sem stundað er á vegum viðurkenndra íþróttafélaga, dans í dansskólum, skátastarf og annað reglubundið frístundastarf.
  • Íþrótta- og tómstundanámskeið barna í 1. og 2. bekk sem skráð eru í Íþrótta- og tómstundaskólann.
  • Þreksal, árskort/sundkort fyrir ungmenni á aldrinum 13 – 16 ára undir eftirliti íþróttafræðings samfellt í a.m.k. 10 vikur.
  • Þreksal, árskort/sundkort fyrir ungmenni eldri en 16 ára.
  • Nám í tónlistarskóla sem er samfellt í a.m.k. 10 vikur.

Hægt er að nýta frístundastyrkinn hjá félögum innan Borgarbyggðar sem og í öðrum sveitarfélögum. Allar umsóknir eru afgreiddar rafrænt, í Þjónustugátt Borgarbyggðar á heimasíðunni www.borgarbyggd.is, í skráningar- og greiðslukerfinu Nóra vegna starfs hjá félögum UMSB á heimasíðunni www.umsb.is eða á heimasíðum annarra sveitarfélaga eða íþróttafélaga.

Forráðamenn skrá sig inn á Þjónustugátt Borgarbyggðar (eða á aðrar síður sem við á), annað hvort með rafrænum skilríkum eða Íslykli. Undir „Frístundastarf“ koma fram upplýsingar um námskeið. Hakað er við „Nota Frístundastyrk Borgarbyggðar“ og þá lækkar upphæð gjalda um þá upphæð sem nemur inneign frístundastyrks.

Frístundastyrkurinn er kr. 20.000 á ári sem möguleiki er að nýta hvenær sem er á árinu. Inneign fellur niður um áramót.

Deildu þessari frétt