Fjölskyldudagur kkd. Skallagríms

Ungmennasamband Borgarfjarðar Körfubolti, UMSB

Fimmtudaginn 21. september verður körfuknattleiksdeild Skallagríms með húllum hæ í Fjósinu.Seldar verða grillaðar pylsur, nammi, gos, candy floss og Skallagrímsvarningur á vægu verði!

Leikmenn meistaraflokks Skallagríms verða á svæðinu og spjalla og gleðja unga sem aldna stuðningsmenn!Afhentar verða pantanir frá Errea frá búningamátuninni.Klukkan 18:40 hefst svo kynning á leikmönnum meistaraflokks karla og í framhaldinu verður æfingaleikur þar sem grænir mæta gulum.Í hálfleik mun vera skotkeppni á milli Steypustöðvarinnar og Borgarverk. Megi sterkasti styrktaraðilinn vinna 🏆Hvetjum alla til að koma og hitta leikmennina okkar, sjá þá takast á og styrkja deildina í leiðinni.Sala á Árskortum hefst einnig á fimmtudaginn.Ekki missa af þessu – fyllum Fjósið – láttu sjá þig!

Deildu þessari frétt