Fjölskyldusirkushelgi á Kleppjárnsreykjum!

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Húlladúllan og Borgarbyggð bjóða upp á bráðskemmtilega og heilsueflandi fjölskyldusirkushelgi helgina 24. – 25. september 2022.
Þátttakendur kynnast hinum heillandi heimi sirkuslistanna og spreyta sig á hinum ýmsu sirkuslistum og og sirkusáhöldum, hópefli og alls konar skemmtilegum leikjum.
Þátttakendum er frjálst að stíga inn og út úr dagskránni eftir því hvað orka og úthald hvers og eins leyfir. Dagskráin er sérstaklega sniðin að því að fjölskyldan og samfélagið geti öll tekið þátt saman, bæði lítil og stór, yngri og eldri. Ætlast er til þess að börn yngri en 10 ára séu í fylgd með eldri fjölskyldumeðlimi eða vinum.
Í boði verða fjölbreyttar sirkuslistir, t.d. húlla, loftfimleikar í silki, blómaprik, sirkusfimleikar og píramídar, djöggl, jafnvægisfjaðrir, kínverskir snúningsdiskar, kasthringir, veltibretti og fimleikaborðar.
Frekari upplýsingar og skráning hér:

Deildu þessari frétt