Íþróttamaður ársins 2021 – tilnefningar óskast.

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

UMSB óskar eftir ábendingum frá almenning um íþróttafólk sem þykir hafa náð góðum árangri eða skarað fram úr í sinni íþrótt á árinu 2021.

Viðkomandi þarf að stunda sína íþrótt með aðildafélagi UMSB eða eiga lögheimili á sambandssvæði UMSB á því ári sem kjörið nær til.

Stjórn UMSB og sveitastjórnir geta hver um sig ákveðið að tilnefna allt að 3 einstaklinga til viðbótar við aðildafélög UMSB.

Ábendingar skulu berast á netfangið umsb@umsb.is fyrir 20.desember.

Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 437-1411.

Deildu þessari frétt