Syndum – Landsátak í sundi hefst í dag

Ungmennasamband Borgarfjarðar Sund, UMSB

Syndum sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir er heilsu- og hvatningarátak í sundi sem stendur frá 1.- 30. nóvember.  Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess.  Átakið var formlega sett á laggirnar árið 2021 og fer nú fram í þriðja skipti. Í átakinu taka landsmenn sig saman og synda hringi í kringum Ísland og í fyrra náðist að leggja að baki 10.2 hringi í kringum landið.                

Syndum – Landsátak í sundi, er viðburður innan Íþróttaviku Evrópu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

Það er margt sem við getum gert til að bæta og viðhalda líkama og sál og allt telur. Íslendingar hafa verið duglegir að stunda sund enda búum við vel að góðum sundlaugum um allt land.

Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.

Syndum saman í kringum Ísland. Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu www.syndum.is. Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland. Á síðunni má jafnframt finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins.

Deildu þessari frétt