Fólk í nefndum hefur áhrif á ýmislegt í starfi UMFÍ.
UMFÍ auglýsir eftir framboðum í nefndir til næstu tveggja ára fyrir árin 2023 – 2025. Rétt á setu í nefnd eiga fulltrúar allra 27 sambandsaðila UMFÍ og þeirra tæplega 500 félaga um allt land sem aðild eiga að UMFÍ.
Fólk sem sæti á í nefndum getur haft áhrif á starf UMFÍ á vettvangi nefndarstarfsins, mótað viðburði og mót, umgjörð um starf skólabúða, heiðursviðurkenningar og margt fleira.
Nefndir þarf að skipa eftir sambandsþing UMFÍ, sem fór fram á Hótel Geysi í lok október.
Nefndirnar eru eftirfarandi:
- Fjárhagsnefnd
- Fræðslu- og sjóðanefnd
- Heiðursráð
- Laganefnd
- Móta- og viðburðanefnd
- Skólabúðanefnd
- Ungmennaráð (sjá má mynd af ráðinu hér að neðan)
- Upplýsinga- og tækninefnd
- Útgáfu- og kynningarnefnd
Áhugasöm sendi póst á umsb@umsb.is fyrir nánari upplýsingar eða fyrir framboð í einhverja nefnd UMFÍ, framkvæmdastjóri kemur því áfram til stjórnar UMSB og UMFÍ.
Deildu þessari frétt