Tilkynning frá Abler (áður Sportabler)

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Í nótt fór í loftið stór uppfærsla af Abler appinu.

Hjá einhverjum notendum uppfærist appið sjálfkrafa en aðrir þurfa að fara í App store / Play store og uppfæra appið þar. Við vekjum sérstaka athygli á því að appið heitir í dag Abler, og kveðjum við með því Sportabler nafnið endanlega.

Nýja uppfærslan inniheldur nýtt og ferskt notendaviðmót en stærsta viðbótin er ný virkni sem nefnist Færslur.

Þessi virkni, sem svipar til þekktra samfélagsmiðla, mun hjálpa við að miðla upplýsingum á skilvirkari máta og draga úr notkun hópskilaboða.

Nánari upplýsingar um uppfærsluna má finna með því að skoða hlekkinn hér að neðan:

https://www.abler.io/home/is/blog/abler3-0-upppfaert-app/

Deildu þessari frétt