UMSB óskar eftir tilnefningum frá almenningi til íþróttamanneskju ársins

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

UMSB óskar eftir ábendingum frá almenningi um íþróttafólk sem þykir hafa náð góðum árangri eða skarað fram úr í sinni íþróttagrein á árinu 2023.

Viðkomandi þarf að stunda sína íþrótt með aðildarfélagi UMSB eða eiga lögheimili á sambandssvæði UMSB á því ári sem kjörið nær til.

Stjórn UMSB og sveitastjórnir geta hver um sig ákveðið að tilnefna allt að 3 einstaklinga til viðbótar við aðildarfélög UMSB.

Ábendingar skulu berast á rafrænu eyðublaði sem má nálgast hér: Tilnefningar-almenningur  eða í tölvupósti á netfangið umsb@umsb.is fyrir 10. desember nk.

Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá framkvæmdastjóra UMSB í gegnum netfangið bjarney@umsb.is eða í síma 437-1411.

 

 

Deildu þessari frétt