Umsóknarfrestur ferðastyrksumsókna er 10. desember í ár

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Umsóknarfrestur fyrir ferðastyrksumsóknir fyrir einstaklinga og hópa er til og með 10. desember í ár.

Hægt er að sækja um ferðastyrk tvisvar á ári, fyrri umsóknarfrestur er til og með 31. maí og sá síðari hefur verið 13. desember en er 10. desember í ár og verður 1. desember frá og með næsta ári.

Sú nýbreytni hefur einnig orðið að sótt er um rafrænt og má finna hlekk á umsóknareyðublöðin hér: Styrkir – Reglur og umsóknarblöð – Ungmennasamband Borgarfjarðar (umsb.is)

Vanti umsækjanda aðstoð við útfyllingu umsóknarinnar er hægt að hafa samband við framkvæmdastjóra UMSB í gegnum netfangið umsb@umsb.is eða í síma 437-1411.

Deildu þessari frétt