Unglingalandsmót UMFÍ

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Nú líður senn að 21. Unglingalandsmóti UMFÍ sem fram fer 2. – 5. ágúst nk. í Þorlákshöfn.

Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum 11 – 18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum en samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Skráningargjald er 7.000 kr. og var opnað fyrir skráningu 1. júlí sl. á slóðinni www.ulm.is.

Unglingalandsmót UMFÍ hafa farið fram reglulega frá árinu 1992 og árlega frá árinu 2002. Mótið hefur  ætíð farið fram um verslunarmannahelgina. Mótið hefur vaxið og sannað gildi sitt sem glæsileg fjölskyldu- og íþróttahátíð þar sem saman koma börn og ungmenni ásamt fjölskyldum sínum og taka þátt í fjölbreytti og skemmtilegri dagskrá.

Á heimasíðu Unglingalandsmóts UMFÍ (www.ulm.is) er að finna upplýsingar um greinar mótsins sem og almennar upplýsingar og hvaða landsþekktu tónlistarmenn koma fram á kvöldvökunum á meðan mótinu stendur. Á næstu dögum sendum við ykkur bæklinga og veggspjöld tengd mótinu til þín.

Inn á facebook er að finna hópinn umsb fólk á unglingalandsmót umfí 2018 https://www.facebook.com/search/top/?q=umsb%20f%C3%B3lk%20%C3%A1%20unglingalandsm%C3%B3t%20umf%C3%AD%202018 Þeir ser hafa hug á að fara á mótið eru hvattir til að fara þar inn. Þar eru frekari upplýsingar um mótið og samskipti foreldra.

Fjölmennum og höfum gaman.

 

Deildu þessari frétt