Unglinglandsmót UMFÍ 2024 fer fram um verslunarmannahelgina í Borgarnesi.
Hvenær get ég skráð mig og hvað er skráningargjaldið?
Opnað verður fyrir skráningu 2. júlí og lýkur henni 29. júlí.
Skráningargjaldið 9.400 kr. Skráningahlekkur
UMSB niðurgreiðir skráningargjaldið fyrir keppendur á sínu sambandssvæði.
Athugið að öll ungmenni á aldrinum 11 – 18 ára geta skráð sig til leiks. Ekki er skilyrði að vera skráð/ur í ungmenna- eða íþróttafélag.
Eitthvað fyrir alla fjölskyldumeðlimi
Dagskrá Unglingalandsmótsins er afar fjölbreytt. Alls eru 18 keppnisgreinar í boði auk ýmisskonar afþreyingar og skemmtunar fyrir alla fjölskylduna. Hér má finna dagskrá keppnisgreina, afþreyingar og skemmtunar fyrir alla daga mótsins.
Boðið er upp á 18 keppnisgreinar á Unglingalandsmóti UMFÍ í Borgarnesi og því ættu flest að finna eitthvað við sitt hæfi. Þetta eru greinarnar: |
Badminton, bogfimi, borðtennis, frjálsar íþróttir, glíma, golf, grasblak, grashandbolti, hestaíþróttir, hjólreiðar, knattspyrna, kökuskreytingar, körfubolti, pílukast, skák, stafsetning, sund og upplestur. Aðrar upplýsingarAfþreyingMótssvæðið verður iðandi af lífi frá morgni til kvölds. Við segjum, Íþróttir á daginn og tónlist á kvöldin. Öll kvöldin verða tónlistarviðburðir þar sem okkar besta tónlistarfólk kemur fram. Fjöldi viðburða fyrir börn yngri en 10 ára verða í boði og allt ókeypis. TjaldsvæðiTjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna er innifalið í þátttökugjaldi mótsins. Svæðið er staðsett á Kárastöðum sem er rétt utan við Borgarnes. Þau sem óska eftir aðgengi að rafmagni á tjaldsvæði þurfa að ganga frá greiðslu fyrir því um leið og gengið er frá kaupum á þátttökugjaldi. Verð fyrir rafmagn er 4.900 kr. fram til 29. júli. Eftir þann tíma hækkar verð upp í 6.900 kr. Tjaldsvæði mótsins er skipt upp í svæði eftir íþróttahéruðum. Þátttakendur á tjaldsvæði eru hvattir til þess að merkja við rétt nafn á íþróttahéraði svo mótshaldarar geti raðað tjaldsvæði upp eftir fjölda tjalda/hýsa frá hverju íþróttahéraði. Á svæðinu verða snyrtingar, rennandi vatn, rafmagn og gæsla frá björgunarsveitum. Strætó mun ganga frá svæðinu að aðal keppnissvæðinu frá kl. 08:30 og fram yfir síðustu keppnisgrein. Hlökkum til að sjá ykkur! |
Deildu þessari frétt