Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði 2023

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) stendur fyrir ungmennaráðstefnunni
Ungt fólk og lýðræði dagana 22. – 24. september á Reykjum í Hrútafirði.

Yfirskrift ráðstefnunnar er, að jörðu skaltu aftur verða og vísar hún til umhverfis- og
loftlagsmála.

Eins og nafnið ber með sér er ráðstefnan fyrir ungt fólk á aldrinum 16 – 25 ára. Engin
skylda er að vera í ungmennaráði eða félagi. Allt ungt fólk á tilsettum aldri er
velkomið.

Markmið ráðstefnunnar er að efla umhverfisvitund ungs fólks og skapa vettvang til
þess að koma saman og ræða hvernig við sem einstaklingar getum lagt okkar að
mörkum til þess að bæta umhverfið okkar og draga úr áhrifum loftlagsbreytinga.

Gleði og þátttaka eru einnig markmið ráðstefnunnar og að veita þátttakendum
tækifæri til þess að kynnast nýju fólki og þjálfun til þess að hafa aukin áhrif á sitt eigið
líf og nær samfélag.

Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði. Hellings hópefli og samvera. Kynningar með
mögnuðum fróðleik. Uppörvandi og hvetjandi málstofur, samtal við ráðamenn,
kvöldvökur og önnur skemmtilegheit. Sjá drög að dagskrá í viðhengi.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 80 þátttakendur svo það borgar sig að bíða
ekki of lengi með skráningu. Fullorðinn einstaklingur þarf að fylgja þátttakendum
yngri en 18 ára. Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern þátttakanda.

Innifalið í gjaldinu eru ferðir, uppihald og ráðstefnugögn. Rúta fer frá þjónustumiðstöð UMFÍ í
Reykjavík á föstudeginum og til baka á sunnudeginum sem þátttakendur eru hvattir
til þess að nýta sér.

Fyrir þau sem ekki geta nýtt sér rútuna er hægt að sækja um styrk
fyrir ferðakostnaði til UMFÍ. Skila þarf inn kvittunum á sérstöku eyðublaði sem sent
verður út eftir viðburðinn.

Athygli er vakin á því að viðburðurinn er með öllu vímuefnalaus, á það einnig við um
rafsígarettur og nikótínpúða.

Skráning er hafin og stendur til 19. september. Smelltu hér til þess að skrá.

Allar upplýsingar er einnig að finna á heimasíðu UMFÍ https://www.umfi.is/vidburdir/ungt-folk-og-lydraedi/ og einnig má finna ráðstefnuna á facebook: https://fb.me/e/1qik5mAZc

Ef eitthvað er óljóst er velkomið að senda tölvupóst á netfangið ungmennarad@umfi.is

Deildu þessari frétt