Sumarfjör 2015

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

 

Í sumar verður sumarfjör í Borgarnesi, Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum og á Varmalandi. Lagt er upp með fjölbreytni og skemmtun. Farið verður í leiki, gönguferðir, listasmiðjur og kynntar verða hinar ýmsu íþróttir. Sumarfjör er fyrir börn í 1. – 7. bekk Grunnskóla Borgarbyggðar. Í ágúst er opið fyrir þau börn sem eru að byrja í skóla í haust. Þátttakendur taka með sér nesti í sumarfjörið ekki er boðið uppá mat. Kaffi klukkan 10:00 hádegi klukkan 12:00 – 13:00 og kaffi klukkan 15:00.

Námskeiðin eru opin öllum óháð búsetu í sveitafélaginu. Skráð er fyrir eina viku í einu og gengið er frá greiðslu um leið.

Skráning í Sumarfjör er hér

Borgarnes mánudag til föstudags

Heill dagur kl. 9:00—16:00, kr. 8.000 vikan

Fyrir hádegi kl. 9:00—12:00, kr. 4.000 vikan

Eftri hádegi kl. 13:00—16:00, kr. 4.000 vikan

Knattspyrnuskóli Skallagríms kl. 9:00—12:00, kr. 5.000 vikan

Hægt verður að kaupa aukatíma millli;

8:00—9:00 og 16:00-17:00. Hver aukatími kostar 350 kr. Á aðeins við í Borgarnesi.

Þær vikur sem verða í boði.

8. -12. júní, 15.– 19. júní, 22.– 26. júní, 29. júní – 3. júlí, 4.– 7. ágúst, 10. – 14. ágúst, 17.– 21. ágúst.

 

Kleppjárnsreykir mánudag til fimmtudags

Kl. 9:00—15:00. kr. 8.000

Þær vikur sem eru í boði

8.–12. júni, 15. –19. júní, 22. – 26. júní, 4.–7. ágúst og 10. –14. ágúst.

 

Varmaland

Kl. 9:00—16:00. kr 8.000 vikan 

Þær vikur sem eru í boði

8.– 12. júní og 15.–19. júní

 

Bifröst

Kl. 9:00—14:00. kr 5.000 vikan 

 

Hvanneyri

Kl. 9:00—14:00 kr 5.000 vikan

Þær vikur sem eru í boði

8. –12. júni, 15. –19. júní, 22.–26. júní, 29.—3. júlí, 10. – 14. ágúst og 17.—21. ágúst.

 

Á frídögum er ekki sumarfjör og ekki tekið gjald fyir þá daga.

Athugið ef þátttaka er ekki næg geta námskeið fallið niður.

 

 

 

 

Deildu þessari frétt