Við erum börnin okkar, grein eftir Sonju Lind, Sambandstjóra UMSB

Ungmennasamband Borgarfjarðar Badminton, Frjálsíþróttafélag Borgarfjarðar, Knattspyrna, Körfubolti, Reykdælir, Sund, UMSB

Við erum börnin okkar

Foreldrahlutverkið er eitt það mest krefjandi hlutverk sem einstaklingur tekur að sér á lífsleiðinni. Við fáum í hendurnar einstakling sem treystir á okkur í einu og öllu, allt það sem við gerum endurspeglast í barninu. Við foreldrarnir erum helstu fyrirmyndir barnanna, því skiptir máli að börnin sjái og fái að taka þátt þegar við hreyfum okkur.

Við vitum öll hversu mikilvægt það er að hreyfa okkur, fátt skilar jafn góðum árangri fyrir líkama og sál og hreyfing. Ef við kennum börnunum okkar að skreppa út í göngutúr eða fara út að hlaupa þá erum við að kenna þeim mikilvægt undirstöðuatriði til heilbrigðs lífs til framtíðar.

Börnin spegla sig í foreldrunum

Þegar ég var lítil var mamma í gönguklúbb, ég var svo heppinn að fá að skottast með í styttri ferðum og kynnast þannig að ganga út í náttúrunni bæða til þess að njóta en einnig til heilsubóta. Nú sem þriggja barna móðir reyni ég að taka hlutverk mitt alvarlega, hvort sem er að bjóða krökkunum með mér í stuttar fjallgöngur, út að ganga eða hlaupa. Það er ótrúlegt hvað stuttar fætur geta komist langt með smá hvatningu og gleði. Á þessum ferðum, hvort sem þær eru stuttar eða langar náum við góðri stund saman sem ég vonast til með að styrkja samband okkar þegar börnin komast á unglingsár. En ekki bara það, von mín er að krakkarnir læri að finna hjá sér hvöt til þess að fá sér göngutúr eða fara út að hlaupa án mín þegar þau verða eldri. Með þessu vonast ég til að skila af mér hamingjusömum og heilbrigðum einstaklingum út í lífið.

Hreyfum okkur saman

Nú á nýju ári eru komin af stað tvö átaksverkefni sem tilvalið er að nýta sér til að komast í gang. Slöbbum saman er skemmtilegt og spennandi samstarfsverkefni sem UMFÍ, ÍSÍ, Landlæknisembættið og Sýn hafa sett af stað og stendur það til 15. febrúar. Þetta verkefni snýst ekki um það hver hreyfir sig mest heldur er það hvatning til fólks um að bæta við sig hreyfingu. Til þess að eiga möguleika á skemmtilegum glaðningi þá getur þú skráð þig á visir.is/slobbumsaman eða merktu mynd með þér og  ef til vill fjölskyldu þinni úr göngunni á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #slobbumsaman.

Hitt verkefnið er Lífshlaupið, það er heilsu og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og er ætlað að höfða til allra aldurshópa. Skráning hófst í dag og hægt er að taka þátt sem einstaklingur, en einnig er í boði vinnustaðakeppni, framhaldsskólakeppni og grunnskólakeppni. Endilega tökum umræðuna um þetta við börnin okkar og vekjum áhuga.

Gleymum ekki ömmu og afa

Ömmur og afar, já og frændur og frænkur skipta líka miklu máli í uppeldi barna. Við skulum hvetja hvort annað og vera dugleg að bjóða krökkunum út að leika og kenna þeim hversu dásamlegt það er að hreyfa sig úti.

Sonja Lind E. Eyglóardóttir Sambandstjóri UMSB

Deildu þessari frétt