íþróttamenn í fararbroddi

Ungmennasamband Borgarfjarðar UMSB

Á næstu dögum mun UMSB kynna betur þá íþróttamenn sem voru í efstu fimm sætum í kjöri á íþróttamanni Borgarfjarðar. Sá sem verður fyrst kynntur er Bjarni Guðmann Jónsson. Hann varð efstu í kjörinu í ár. Bjarni er einn af lykilleikmönnum í meistaraflokki Skallagríms í körfubolta og átti stóran þátt í því að vinna liðinu sæti í úrvalsdeild í vor og hefur þrátt fyrir ungan aldur stimplað sig inn sem eitt allra mesta efni sem komið hefur úr yngri flokkum Skallagríms.  Bjarni var valinn í U20 ára landslið Íslands árið 2018.

 

Kynnumst Bjarna aðeins betur

 

Hver er þín helsta fyrirmynd í íþróttinni?

Kristaps Porzingis

 

Hver hefur haft mest áhrif á þig sem íþróttamann?

Bara fullt af fólki, engin ákveðin.

 

Hvar sérðu þig fyrir þér eftir 5 ár?

Hugsa ekki of langt fram í tímann, kemur bara í ljós.

 

Með hvaða liði heldur þú í NBA?

Los Angeles Lakers

 

Þitt mesta afrek í íþróttinni?

Komast í landsliðið.

 

Spilarðu í eða með eitthvað sem færir þér gæfu? Ertu hjátrúarfullur?

Nei ég spila aldrei í neinu sérstöku og er ekki hjátrú fullur, en fylgi smá rútínu á leikdegi.

 

Hvað færðu þér á pylsuna þína?

Fæ mér eina með öllu.

 

Hvernig er dæmigerður dagur í þínu lífi?

Vakna, borða, æfing, borða, chilla, borða, æfing, borða.

 

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Mexíkóskur matur er í uppáhaldi.

 

Hver er sá besti sem þú hefur spilað með?

Flenard Whitfield.

 

Af hverju valdirðu körfubolta?

Félagskapurinn er sá besti sem völ er á.

 

 

 

Deildu þessari frétt