Íþróttamaður ársins 2021 – tilnefningar

Ungmennasamband Borgarfjarðar Badminton, Knattspyrna, Körfubolti, Reykdælir, Sund, UMSB

Þrátt fyrir skrítið covid ár með allskyns takmörkunum hefur íþróttafólkið okkar náð mjög góðum árangri hér á landi og erlendis.

Kosningu er lokið fyrir íþróttamann Borgarfjarðar árið 2021 og hefur verið ákveðið að hafa hátíðina í ár rafræna, sem sagt með svipuðum hætti og í fyrra.

Þann 12.janúar kl 17:00 verður myndbandið birt á www.umsb.is og á facebook síðu Ungmennasambands Borgarfjarðar.

Við höfum fengið tækninefnd MB í samstarf við okkur og ætla þau að klippa saman og útbúa skemmtilegt myndband um Íþróttamann Borgarfjarðar.

Hér fyrir neðan sjáið þið þá flottu íþróttamenn sem voru tilnefndir í ár.

 

Alexandrea Rán Guðnýjardóttir, kraftlyftingar

 

Bjarki Pétursson, golf

Bjarni Guðmann Jónsson, körfubolti

Embla Kristínardóttir, körfubolti

Erla Ágústsdóttir, ólympískar lyftingar

Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir, frjálsar     

Heiður Karlsdóttir, körfubolti     

Helgi Guðjónsson, fótbolti       

Jósep Magnússon, hlaupari 

Kolbrún Katla Halldórsdóttir, hestaíþróttir

Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingar       

Sigursteinn Ásgeirsson, frjálsar 

Viktor Már Jónasson, fótbolti

 

 

Deildu þessari frétt