Skrifstofa UMSB flytur og starf tómstundafulltrúa farið yfir til Borgarbyggðar

Ungmennasamband Borgarfjarðar Badminton, Frjálsíþróttafélag Borgarfjarðar, Knattspyrna, Körfubolti, Reykdælir, Sund, UMSB

Ýmsar breytingar urðu á starfsemi UMSB nú í ágúst.

Starf tómstundafulltrúa sem hefur verið undir UMSB síðustu ár var fært yfir til Borgarbyggðar þann 1. ágúst en Sigga Dóra mun áfram gegna því starfi.

Við þökkum Siggu Dóru kærlega fyrir góð störf innan UMSB síðustu ár en við munum að sjálfsögðu enn vera í góðu samstarfi þó að það sé með aðeins breyttu sniði.

Skrifstofa UMSB, sem hefur verið til húsa að Skallagrímsgötu 7a, er flutt að Bjarnarbraut 8. Er það gert vegna ýmissa hagræðinga en mun ekki hafa nein áhrif á starfsemina sem slíka, nema þá vonandi bara til hins betra.

Aðildarfélög munu enn geta nýtt sér UMSB húsið til fundahalda og hittinga eins og áður.

Deildu þessari frétt